Takk fyrir okkur!!!
juli 29, 2008
Við hjónakornin viljum þakka ykkur öllum fyrir að hafa gert þessa daga alveg ógleymanlega, þvílík var stemmingin og gleðin. Allir þeir sem lögðu extra hönd á plóg (þið vitið hver þið eruð) eiga mikið hrós skilið án ykkar hefði þettað verið algerlega ómögulegt og svo vil ég lóka þakka sólinni sem ákvað líka að gera sitt basta til að þetta yrði nú góður dagur. Vá, þetta er farið að líkjast Óskarsræðu, en við erum allavega mjög ánægð og höfum fátt gert annað en að brosa í hring síðan við sáum ykkur síðast
og takk fyrir það.
Ást og hamingja – Frú Rósa & Herra Anders
ps. Smá praktískt hérna í lokin:
LOST&FOUND – það hafa fundist hinir ímsustu hlutir þegar tekið var til eftir hátíðarhöldin svo ef þú saknar einhvers þá eru miklar líkur á að það sé heima hjá pabba – láttu mig bara vita. Svo finnum við hvergi kortahaldara úr áli með nokkrum plastkortum frá Andersi og plastpoka með spilum (Risk, monopoly og eitthvað fleira)
BLÅBOG - vegna fjölda óska er hægt að nálgast litla heftið þar sem við skrifuðum um gestina hér: BLÅBOG.
“ER DET DIG DER ER GAVEN?” – og hér er videolinkur á Twin Peaks inspireraða “kortið” frá dönsku krökkunum http://www.youtube.com/watch?v=eXND0_JGQNo