Danir og bílar
januar 26, 2008
Jæja, þá eru Danirnir byrjaðir að skipuleggja Íslandsferðina og orðnir mjög spenntir að sjá land og þjóð. Margir hafa hugsað sér að leigja bíl og þeysa um landið dagana fyrir og eftir brúðkaupið. Sumum dönunum finnst svolítið dýrt að leigja bíl fyrir um 10000kr.- á dag sem virðist vera standard prísinn. Svo sú hugmynd kom upp hvort það væru einhverjir Íslendingar sem byggju svo vel að geta lánað bílinn sinn aðeins ódýrar í nokkra daga (þeir sem ættu aukabíl eða væru hreinlega ekki að nota sinn bíl). Svo ef þú gætir hugsað þér að hjálpa nokkrum Dönum og græða smá pening í leiðinni vertu þá endilega í bandi, einnig ef þú veist hvort maður getur leigt bíla ódýrt einhvers staðar.
Ást og hamingja Rósa
Hæ hæ elskurnar!
Jæja þá er ég búin að adda síðuna inn á favorites hjá mér. Gaman að geta kíkt hér inn. Annars styttist nú óðum í að við sjáumst Rósa mín. Hlakka mikið til.
Knús helgs